Viðburðir
Það er ekki á hverjum degi sem allir meðlimir Dillalude eru í bænum á sama tíma – og í tilefni þess að Secret Solstice er rétt handan við hornið blæs hljómsveitin til heljarinnar tónleika á Prikinu í kvöld laugardaginn 10. júní.
Fyrir þá sem þekkja ekki Dillalude þá sérhæfir hljómsveitin sig í því að flytja og túlka tónlist Jay Dilla (Jay Dee) í lifandi tónum á sviði.
Veislan hefst kl 21:00 og lýkur rétt fyrir miðnætti. Á milli atriða spila DJ THAISON & GERVISYKUR. SKE stingur upp á því að áhugasamir mæti snemma því færri komust að en vildu á síðustu tónleika Dillalude á Prikinu.
Frítt inn að vanda.
Hljómsveitin:
Ari Bragi Kárason
Benni B-Ruff
Magnús Tryggvason
Steingrímur Teague
Magnús Jóhann
Nánar: https://www.facebook.com/event…
Hér fyrir neðan má sjá Dillalude á KEX og á Sónar 2017.