Í tilefni þess að Ísland sé búið að tryggja sér þáttöku á HM í Rússlandi næsta sumar mun verðlaunagripur mótsins koma til landsins síðar í vetur og þá í boði Coca-Cola.
Líkt og fram kemur í tilkynningu Coca-Cola mun bikarinn ferðast til yfir 50 landa og gefst íslenskum knattspyrnuunnendum kostur á að sjá hann með eigin augum næstkomandi 25. mars.
„Ferðalag bikarsins hófst í september 2017 í Rússlandi og mun spanna yfir 50 lönd í sex heimsálfum og um 126,000 kílómetra á þeim níu mánuðum fram að keppninni sjálfri, HM2018. Í Rússlandi einu mun bikarinn heimsækja 25 borgir — en það er lengsta viðvera bikarsins hjá gestgjafa síðan ferðalögin hófust — þar sem einn af hverjum þremur Rússum hefur tækifæri til að sjá bikarinn með eigin augum.”
– Fréttatilkynning Coca-Cola