Síðastliðið laugardagskvöld, eða þann 25. febrúar, fór útvarpsþátturinn Kronik í
loftið í 12. sinn – frá því að þátturinn hóf göngu sína á ný í lok nóvember 2016.
Gestir þáttarins voru DJ Karítas, ddykwl og HRNNR & Smjörvi, en þeir síðarnefndu fluttu lagið Rúllum á bílum í beinni (sjá hér fyrir ofan).
Eins og sjá má á myndbandinu voru umsjónarmenn þáttarins sérdeilis ánægðir með flutning HRNNRs og Smjörva, enda um mikla innlifun að ræða.
Hér fyrir neðan má hlýða á hljóðversútgáfu lagsins.
#Feruppoglagaþakið