Viðburðir
Á morgun (21. júní) verður tónleikaröðin Stage Dive fest haldin hátíðleg í fimmta skiptið á Húrra en markmið hátíðarinnar er að fagna öllu því ferskasta og nýjasta í íslensku rappi. Frá því að fyrstu tónleikarnir voru haldnir í fyrra hafa fjölmargir hæfileikaríkir listamenn stigið á svið, þar á meðal GKR, Cyber, Black Pox, Geisha Cartel, Alvia Islandia, Auður, Kef LAVÍK, Dadykewl og fleiri.
Fram koma, í þetta skiptið:
Countess Malaise & Lord Pusswhip
Kuldaboli
Andsetinn
m e g e n
Hvar: Húrra
Hvenær: Miðvikudaginn 21. júní (20:00)
Aðgangur: 1.000 ISK
Nánar: https://www.facebook.com/event…
Hér fyrir neðan má svo heyra tóndæmi frá fyrrnefndum listamönnum: