Í gær leit ný stikla úr kvikmyndinni Guardians of the Galaxy 2 dagsins ljós en myndin er væntanleg í kvikmyndahús 5. maí 2017. Eins og greina má úr stiklunni er allt gamla gengið úr fyrstu myndinni samankomið á ný: Star-Lord (Chris Pratt), Gamora (Zoe Saldana), Drax the Destroyer (Dave Bautista), Rocket Raccoon (Bradley Cooper) og meira að segja Tiny Groot (Vin Diesel). Lagið sem hljómar í bakgrunni stiklunnar er Hooked On A Feeling eftir hljómsveitina Blue Suede en segja má að tónlist hafi verið í ákveðnum forgrunni í fyrstu myndinni.
Nýverið birti Marvel (framleiðandi myndarinnar) nýtt plakat sem lítur býsna vel út.