Auglýsing

Nýtt myndband frá Kaleo

Hljómsveitin Kaleo sendi frá sér myndband við lagið No Good í dag, þar sem aðdáendum gefst tækifæri að gægjast bakvið tjöldin í tónleikaferðalag strákanna um Bandaríkin. Lagið, sem kom út fyrr á þessu ári, vakti mikla athygli þegar það hljómaði í auglýsingu fyrir sjónvarpsþættina Vinyl á HBO. Lagið kom einnig við sögu í þáttunum sjálfum (þættirnir voru framleiddir af þeim Martin Scorsese og Mick Jagger.)

No Good verður að finna á væntanlegri plötu Kaleo sem ber heitið A/B og kemur út næstkomandi 10. júní. Kaleo spilar einvörðungu á einum tónleikum hér á landi í sumar og fara þeir fram í Gamla Bíó þann 9. júlí. Miðasala á tónleikana hófst síðasta föstudag og seldist upp á tónleikana nánast samstundis.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing