Warner Bros. hefur gefið út myndband þar sem Ryan Gosling og Russel Crowe fara í parameðferð saman. Myndbandið eru hluti af auglýsingarherferð myndarinnar The Nice Guys, sem Shane Black leikstýrir (Kiss Kiss Bang Bang, Iron Man 3) og er væntanleg í lok maí.
Russell Crowe hefur farið fögrum orðum um frammistöðu Gosling í myndinni. Í viðtali á CinemaCon hátíðinni sagði Crowe, meðal annars, að hann hafi aldrei hlegið jafn mikið á ferlinum eins og við tökur myndarinnar.