Það muna flestir eftir hversu vinsæl G-shock úrin voru hérna áður fyrr, líklegast áttiru eitt G-Shock úr og Karl Kani buxur. G-Shock hefur nú gefið út úr í takmörkuðu magni sem hannað er í samstarfi við Stussy.
Stussy G-shock úrin eru meðal annars útbúin:
- -Áminningu á klukkutíma fresti
- -Sjálfvirku dagatali (forritað til 2039)
- -Niðurteljara
- -Lýsingu
- -Vatnsþétt í allt að 200 metra dýpi
Úrin eru nettari en áður og hefur hönnun þess tekið mikið stökk.
Verð frá 199 $ – Turntablelab.com