Í gær birtu félagarnir Curls og Marc (sem stýra Youtube rásinni Cream Clout) nýtt myndband þar sem þeir bregðast við myndbandi Emmsjé Gauta við lagið Svona er þetta; ekki er langt síðan að myndbandið við lagið Reykajvík var tekið fyrir á rásinni.
Segja má að tvíeykið sé sérdeilis ánægt með tónlist Emmsjé Gauta, en reka þeir
félagar þó upp stór augu tvívegis í myndbandinu: Þegar Emmsjé Gauti situr á
kjöltu vinar síns, annars vegar, og þegar hópur af olíubornum kraftakörlum vaggar
sér við tónlistina, hins vegar:
„You’ve got some explaining to do about this one, bro. You’ve got the oiled up ni#$as and you’re sitting on a grown man’s lap.“
– Emmsjé Gauti
Í lok myndbandsins viðhalda félagarnir þeirri hefð að líkja íslenskum röppurum við bandarískar dægurhetjur, en þykir þeim Emmsjé Gauti svipa sterklega til Jesse í sjónvarpsþáttunum Breaking Bad.
Hér fyrir neðan má svo fylgjast með viðbrögðum Cream Clout við Reykjavík.