Fréttir
Fyrsti dómur um kvikmyndina The Ottoman Lieutenant, sem skartar hinni íslensku Heru Hilmarsdóttur, var birtur á vefsíðunni Shockya.com síðastliðinn 24. febrúar. Myndin, sem verður frumsýnd næstkomandi 10. mars í völdum kvikmyndahúsum, fær fína dóma frá gagnrýnandanum Harvey Karten.
Leikstjóri myndarinnar er Joseph Ruben en í greininni segir: „Í kvikmyndinni Sleeping with the Enemy, sem Ruben leikstýrði árið 1991, beindi hann athygli sinni að konu sem sviðsetur eigin dauða til þess að forðast eiginmann sinn, en er bjartsýnni í þetta skiptið. Í brennideplinum er Lillie (Hera Hilmars), sem fær leið á þægilegu lífi sínu í Bandaríkjunum …“
Karten, líkt og Ruben, einblínir einnig á Heru í gagnrýni sinni:
„Og mikið rosalega er hún dásamleg, hin íslenska Hera Hilmars í hlutverki sínu sem Lillie … við minnsta tillit bráðna menn. Og er það ekki skiljanlegt?“
– Harvey Karten
Lítið er fjallað um Josh Hartnett eða Ben Kingsley, meðleikara Heru í kvikmyndinni, í dómi Karten, sem endar með eftirfarandi orðum:
„Þetta er mynd fyrir stóra skjáinn, mynd sem gæti orðið til þess að áhorfendur fylgist vel með Heru Hilmars í framtíðinni …“
– Harvey Karten