Hljómsveitin GDMA samanstendur af rapparanum Gabríel Werner og taktsmiðnum Degi Snæ.
Síðastliðinn 19. september gaf tvíeykið út lagið Týpa á Spotify (sjá hér fyrir ofan) en um ræðir fyrsta lagið sem sveitin gefur út eftir útgáfu plötunnar Falskur Fugl sem kom út í maí.
Í samtali við SKE fyrir helgi sagði rapparinn Gabríel Werner að hlustendur mættu vænta fleiri laga frá sveitinni á komandi misserum:
„Við erum að vinna í nokkrum lögum sem við erum við það að klára og stefnum að því að gefa út fleiri lög með stuttu millibili á næstunni.“
– Gabríel Werner
Hér fyrir neðan geta áhugasamir hlýtt á smáskífuna Falskur Fugl sem er einnig aðgengileg á Spotify.