Fréttir
Í fyrradag (5. september) birti rithöfundurinn of femínistinn Blair Thornburgh mynd af matseðli Icelandair á Twitter síðu sinni þar sem hún hrósar ónefndum textasmið fyrir góð skrif en tístið hefur vakið mikla lukku meðal notenda:
Tæplega 2.000 manns hafa endurtíst myndinni þar sem kartöfluflögunum Pringles er lýst á kaldhæðnislegan hátt:
„Pringles. Auðvelt er að stafla þessum bragðgóðu kartöfluflögum upp sem er einmitt sá eiginleiki sem skiptir hvað mestu máli þegar kartöfluflögur eru annars vegar.“
– Ónefndur textasmiður Icelandair
Fjölmargir hafa tekið undir ákall Thornburg og virðast flestir fylgjendur rithöfundarins vera ansi ánægðir með textahöfunda Icelandair.