Í dag (29. nóvember) gaf rapparinn Herra Hnetusmjör út myndband við lagið Fóbó (sjá hér að ofan). Taktsmíð var í höndum Þormóðs Eiríkssonar og var það Eiður Birgisson sem leikstýrði.
Lagið er að finna á plötunni Hetjan úr hverfinu sem kom út fyrir stuttu.
Þess má geta að Herra Hnetusmjör hyggst fagna útgáfu plötunnar á Húrra næstkomandi 7. desember.