Fréttir
Í gær (26. desember) rataði myndband við lagið Hvað er planið? eftir rapparana 24/7 og Birgir Hákon á Youtube (sjá hér að ofan).
Takt lagsins smíðaði Hlandri—sem er meðlimur hljómsveitarinnar Rari Boys—en hann kemur einnig við sögu í myndbandinu. Leikstjórn myndbandsins var í höndum Ingimars Elíassonar.
Þá bregður rapparanum Herra Hnetusmjör einnig fyrir í myndbandinu (Herra Hnetusmjör leyfir þó Birgi og 24/7 að sjá alfarið um rappið).
Áhugasamir geta fylgst nánar með 24/7 og Birgi Hákon á Instagram sem og á Spotify:
Instagram (24/7): https://www.instagram.com/tutt…
Instagram (Birgir Hákon): https://www.instagram.com/birg…