Auglýsing

Hvað jafngildir jólasveinslyginni fyrir fullorðna?

Um jólin varpaði Reddit-notandinn MysticPato fram spurningu sem vakti sterk viðbrögð notenda, nefnilega Hvað jafngildir jólasveinslyginni fyrir fullorðna (What’s the Adult Version of ‘There Is No Santa Claus’?) 

Nánar: https://www.reddit.com/r/AskRe…

Myndaðist býsna lífleg umræð í kjölfar spurningarinnar þar sem fjölmargir netverjar leituðust við að svara spurningunni. Sitt sýndist að sjálfsögðu hverjum. Í tilefni jólanna  tók SKE saman brot af því besta.

Það sem jafngildir jólasveinslyginni fyrir fullorðna er ÞEGAR ÞÚ KEMST AÐ ÞVÍ …

… að foreldrar þínir voru bara venjulegt fólk að gera sitt besta—alveg eins og þú.

… að manneskjan sem útskrifaðist með lægstu einkunn í læknisfræði er nú titlaður læknir.

… að það eru engir álitlegir einhleypir einstaklingar í nágrenninu (eða jú, kannski—en þeir hafa engan áhuga á þér).

… að háskólagráðan tryggir þér ekki starf; öllu heldur hefur reynslan miklu meira að segja. 

… að súlan snýst (á nektarbúllunni).

… að þú deyrð—og allir sem þú elskar líka.

… að skallabletturinn er auðsjáanlegur.

… að guð er ekki til.

… að kynlíf er ekki alltaf frábært.

… að tiltekið fyrirtæki réð þig á staðnum EKKI vegna þess að þú ert frábær manneskja með mikla reynslu—heldur vegna þess að þetta er ömurlegt starf.

… að alheiminum er alveg sama um þig.

… þegar þú útskrifast—eða giftir þig, eða eignast þitt fyrsta barn, eða kaupir þína fyrstu íbúð—að þú verðir EKKI hamingjusamur það sem eftir er ævinnar … hamingjan er sveiflukennd. 

… að hugtakið „Að setjast í helgan stein“ hefur ekkert með aldur að gera—miklu frekar fjárhag.

… að retórík hefur mun meiri áhrif á almenning heldur en rökhugsun.

… að þú ert ein/n á báti—og enginn kemur þér til bjargar.

… að réttsýni og góðmennska einkennir alls ekki allt lögreglufólk.

… að barnið þitt er fáviti. Þetta er ekki tímabundið ástand, heldur eilífur sannleikur.

… að heimurinn skuldar þér ekki neitt.

… að Half Life 3 kemur aldrei út.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing