Fréttir
Raftónlistarmaðurinn og tónskáldið Úlfur Hansson fylgir eftir plötunni Arborescence (nóv 2017) með endurhljóðblandaðri útgáfu af plötunni („remix EP“) að nafni Arborescence {remixes}. Þar endurvinna þrír af áhugaverðustu tónlistamönnum samtímans uppáhalds lög sín af plötu Úlfs.
EP platan inniheldur þrjú lög og verður fáanleg stafrænt frá og með 20. júlí. Þó má hlýða á fyrsta lagið strax, en það er Kara-Lis Coverdale sem sá um endurgerð þess. Hún hefur gert það gott með tilraunakenndri tónlist sinni undanfarið og hlaut til dæmis mikið lof fyrir plötuna Grafts sem kom út í fyrra, sem endaði á þó nokkrum árslistum. Fyrir Arborescence {remixes} endurvann hún lag Úlfs “Serpentine” og notaðist eingöngu við strengjabúta við gerð útgáfu sinnar. Útkoman er lágstemmd, fíngerð og eilítið drungaleg. Hægt er að forpanta EP plötuna á bandcamp og þá fylgir niðurhal af laginu með, auk þess sem hin lögin tvö verða send rakleiðis í pósthólf kaupanda á útgáfudegi.
Auk Kara-Lis Coverdale eru það þeir Oren Ambarchi og Alex Somers sem hafa endurgert lög af plötunni. Þau verða aðgengileg síðar – fylgist með! Þangað til er hægt að hlýða á plötuna sem byrjaði þetta allt – Arborescence – hér.
Miðlarnir Self-titled magazine og The Quietus fóru fögrum orðum um verkefnið, greinarnar má lesa hér og hér.
Úlfur hefur afrekað margt á sínum ferli þótt ungur sé og má þar nefna samstarf hans með Jónsa í Sigur Rós, Kronos Quartet og Sinfóníuhljómsveit Íslands.