Rapparinn Króli, sem ásamt sínum góða félaga JóaPé, sendi frá sér plötu á dögunum segir frá því á Twitter að þetta verði síðasta platan hans í bili.
Ekki er ljóst á orðum hans hvort að síðasta plata, Í miðjum kjarnorkuveri, hafi tekið svona mikið á að hann sé búinn að fá nóg eða hvort að hann sé bara kominn í stutt frí. Við hér á Ske vonum að Króli snúi fljótlega aftur eftir góða hvíld.
Skrítið en á sama tíma smá frelsandi, en ég get held ég sagt að ég sé bara smá stoltur af þessari plötu, sem er gaman og flott. Þetta verður líka síðasta platan mín í bili, þetta er komið gott, takk fyrir mig❤️
— Króli? (@Kiddioli) May 15, 2020