Hann svipar helst til bandaríska leikarans Christopher Mintz-Plasse (McLovin), gengur um með gula húfa og er fremur svifaseinn í hreyfingum: baðar út höndum eins og letidýr á laugardegi.
Fyrirsjáanlega er honum líkt saman við rapparan Eminem, en það er hvimleið samlíking.
Við vitum, í raun, lítið um þennan mann, annað en það að hann gengur undir nafninu March og gaf út myndband við lagið Boom Boom Pow í byrjun október (sjá hér að ofan). Samkvæmt þýðingaþjónustu Google býr hann í Lettlandi.
Hvað sem fávísi okkar líður þá er hér á ferðinni stórgott lag sem heldur upp heiðri gamla skólans á aðdáunarverðan máta.