Auglýsing

Listahátíðin Sequences fagnar 10 ára afmæli á morgun

Myndlistarhátíðin Sequences fagnar 10 ára afmæli laugardaginn 19. nóvember en hátíðin hóf göngu sína árið 2006 og hefur verið haldin sjö sinnum.

Hátíðarhöld hefjast kl. 12:45 í Listasafni Íslands þar sem Margot Norton, sem nýlega var útnefnd sýningarstjóri næstu hátíðar, mun flytja stutt ávarp, kynna áherslur næstu hátíðar og tilkynna um heiðurslistamann, en hefð er fyrir því að tilnefndur sé heiðurslistamaður Sequences fyrir hverja hátíð.

Þá mun hún einnig segja frá verki David Horvitz Let Us Keep Our Own Noon sem verður til sýnis í Listasafni Íslands fram að vetrarsólstöðum 21. desember. Boðið verður upp á glæsilega afmælistertu í safninu sem stjórnarmenn hátíðarinnar eiga veg og vanda að. Þaðan verður haldið í Mengi þar sem fram fer opin skúlptúrkeppni og Rebecca Moran sýnir nýlegt verk og DJ Tilfinninganæmur (Ragnar Kjartansson) leikur létta stemmningsmúsík. Gif hreyfimyndir eftir hóp listamanna sem Hildigunnur Birgisdóttir hefur valið koma við sögu og dagskránni lýkur með opnun hljóðinnsetningarinnar Dagrenning að eilífu eftir Ragnar Helga Ólafsson, sem standa mun fram að næstu Sequences hátíð, haustið 2017.

Um leið og þessi dagskrá fagnar afmæli Sequences er hún nokkurs konar brú yfir í næstu hátíð. Listamennirnir sem sýna verk sín eru t.d. allir sýnendur á næstu hátíð og er þátttaka sýningarstjórans til marks um metnað hennar og áhuga á að mynda sterk tengsl við íslenska listasenu og listamenn og kynna sér menningarlíf borgarinnar vel fyrir framkvæmd hátíðarinnar 2017. Því má segja að þessi dagskrá sé nokkurs konar forspil að stóru hátíðinni:

„Þegar ég kom fyrst til Íslands fyrir nokkrum árum síðan fann ég strax fyrir kraftinum í listasenunni í Reykjavík og því hversu mikill samstarfsandi ríkir meðal aðila menningarlífsins þvert á miðla og form sem getur af sér svo framsækin verkefni og öflugan vettvang fyrir listina. Ég dáist innilega að Sequences hátíðinni og því hvernig hún umfaðmar tilraunakennda myndlist með sérstaka áherslu á miðla sem gjarnan verða út undan eins og video, gjörninga og hljóð. Ég er hæstánægð að vinna að dagskrá Sequences VIII á afmælisári hátíðarinnar og að starfa í svo sterku og kraftmiklu umhverfi þvert á listgreinar.“

– Margot Norton

Listahátíðin Sequences hefur að markmiði að vera vettvangur fyrir framsækna myndlist með sérstaka áherslu á tímatengda miðla á borð við gjörninga, hljóðlist, videólist og listrænar uppákomur. Frá upphafi var lagt upp með að Sequences væri í höndum myndlistarmanna og listamannarekinna stofnana og að þar ríkti andi frumkvæðis, tilrauna og áræðni. Sequences veitir almenningi tækifæri á að fá innsýn inn í það sem á sér stað í samtímamyndlist á Íslandi hverju sinni auk þess að leggja upp úr því að vera í tengslum við alþjóðlega listamenn og flytja spennandi verk til landsins.

Hvar: Listasafn Íslands
Hvenær: Laugardaginn 19. nóvember, 12:45
Aðgangur: Ókeypis

Nánar: https://sequences.is/2016/10/sequences-fagnar-10-a…

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing