My killa tape’s /
Gonna play loud
Till Dilla wakes /
segir bandaríski rapparinn Masta Ace í laginu The Fight Song sem hann samdi í samstarfi við taktsmiðinn Marco Polo og Pharoahe Monch. Línan vísar að sjálfsögðu í tónlistarmanninn sáluga J Dilla (Dilla andaðist árið 2006, langt fyrir aldur fram). Myndbandið við lagið rataði inn á Youtube í gær (sjá hér að ofan).
Lagið er að finna á plötunni A Breukelen Story sem Masta Ace og Marco Polo gáfu út í nóvember í fyrra (sjá hér að neðan). Meðal þeirra sem koma við sögu á plötunni eru Smif-N-Wessun, Styles P, Lil Fame og Elzhi.
Platan fékk 7 í einkunn af 10 mögulegum hjá vefsíðunni The 405 í fyrra.
„A Breukelen Story er bjargvættur aðdáenda gamla skólans. Meðalhraðir, afslappaðir taktar, skreyttir píanó- og gítarsömplum, minna helst á endurreisnartímabil rapptónlistar á tíunda áratugi síðustu aldar,“ ritar blaðamaðurinn Timothy Michalik í umfjöllun sinni á síðunni.