Áður
en hugtakið „ást“ varð til, var engin ást.
Aldrei
kom það fyrir, fyrir tíð tungumálanna, að einn maður sagði
við annan:
„Hún
er falleg og kynlífið er gott – en ég veit ekki hvort að ég sé
ástfanginn; við deilum ekki sömu áhugamálunum. Ég hef gaman að
Woody Allen og Debussy en hún er meira fyrir Scorsese. Einnig finnst
henni Debussy vera ofmetinn og vill heldur hlýða á Wagner – í
ofanálag þolir hún ekki Drake.“
Þá
var ekkert sjónvarp, engin klassísk tónlist, engar kvikmyndir,
ekkert – bara þegjandi samkomulag tveggja einstaklinga (sem
bjuggu í grennd við hvort annað) sem grundvallaðist, að öllum
líkindum, á holdlegu samneyti.
Svo
fæddist tungumálið og með tungumálinu fæddust hugtök á borð
við „fegurð,“ „rómantík,“ og „samlyndi.“
Flæktust
málin þá nokkuð – því tungumálið gat einnig af sér önnur
fyrirbæri: trúarbrögð, búskap, list, pólitík, o.s.frv.
Tilhugalífið
fæddist.
Ekki
var það lengur dugandi fyrir tvær manneskjur að líka vel við
hvort annað, heldur þurftu þær nú að segja hug sinn, að
tjá ást sína í rituðu máli og töluðu, að deila sameiginlegum
áhugamálum, sumsé – AÐ TALA SAMA TUNGUMÁL.
Tungumál
og menning gerðu mönnunum kleift að dæma einhleypa manneskju út
frá fleiri eiginleikum en áður:
Ekki
bara hleypur hratt, hávaxin/n, slátraði eitt sinn híenu –
heldur líka sterklega vaxin/n, trúrækin/n, hefur áhuga á
bókmenntum.
Svo
kom tæknin – og flæktust málin enn frekar. Í dag – með
tilkomu bílanna, símanna, flugvélanna, Alnetsins,
tölvupóstsins, snjallsímanna, Tinder, o.s.frv – eru
möguleikarnir endalausir:
1. Aldrei fyrr hafa jafn margar
manneskjur búið á jörðinni.
2. Aldrei fyrr hefur verið jafn
auðvelt að ferðast á milli landa.
3. Aldrei fyrr hefur verið
jafn auðvelt að kynnast öðrum einhleypum einstaklingum á netinu.
En
með auknum möguleikum hækkar
flækjustigið.
Þáttaröðin
Master of None fjallar að einhverju leyti um þetta, sumsé
ástina á 21. öldinni. Grínistinn Aziz Ansari fer með hlutverk
Dev Shah í þáttunum en Dev leitar af ástinni í völundarhúsi nútímatækninnar (Aziz Ansari framleiðir þáttaröðina ásamt Alan Yang). Þáttaröðin er í senn fyndin, áhugaverð og hjartnæm.
Síðastliðinn föstudag rataði önnur sería þáttarins Master of None á Netflix en fyrsta sería Master of None naut mikilla vinsælda þegar hún kom út árið 2015.
Í tilefni útgáfu annarrar seríu Master of None tók SKE saman 10 góð lög sem hljóma í annarri seríu, mælum við jafnframt heilshugar með þáttunum:
1. Tupac – Only God Can Judge Me
2. D’Angelo – Brown Sugar
3. Kraftwerk – Computer Love
4. Digable Planets – Rebirth of Slick
5. Craig Mack feat. Biggie Smalls – Flava In Ya Ear (Remix)
6. New Edition – Can You Stand the Rain
7. Mr. Fingers – Mystery of Love
8. Timmy Thomas – The Coldest Days of My Life
9. Ennio Morricone – Alla luce del giorno
10. Bobby Charles – I Must Be In A Good Place Now
Einnig hvetjum við lesendur til þess að kynna sér lagalistann Master of None: All Songs in Season 2 eftir Pitchfork á Spotify: