Mystic Blue er íslenskt rapptríó sem samanstendur af Kutumi’ra, KSK (einnig þekktur sem plasticboy úr Geisha Cartel) og Flame.
Síðastliðinn 17. maí gaf tríóið út myndband við lagið In Da Club (sjá hér fyrir ofan). KSK sá um pródúseringu, texta og rapp og var myndbandið unnið í samvinnu með Jóhanni Inga Skúlasyni (sem gengur undir listamannsnafninu MÓKI). Þess má einnig geta að MÓKI leikstýrði myndbandinu Blue Sky sem tríóíð sendi frá sér fyrr á árinu (sjá neðst).
Áhugasamir geta fylgst með KSK á Soundcloud:
https://soundcloud.com/thereal…