Hin sívinsæla söngva- og dansmynd Grease frá 1978 er mörgum í fersku minni en þar fóru Olivia Newton-John og John Travolta á kostum og það meira. Myndin verður sýnd í kvikmyndahúsum á ný í aðeins fáein skipti og áhorfendur mega þá ekki vera feimnir við að taka funheita ‘50s fílinginn alla leið, dusta rykið af gamla leðurjakkanum og dansa með fjörinu þangað til máninn verður blár.
„Á sýningunni sjálfri hvetjum við alla til þess að taka þátt í stemningunni með okkur, draga leðurjakkana og kjólana úr fataskápnum og setja gel eða tíkó í hárið,“ sagði Alfreð Ásberg Árnason, framkvæmdastjóri Sambíóanna, sem ætla að minnast Oliviu Newton-John, hinnar einu sönnu Sandy, með sýningum á söngleiknum.
Byrjað verður á einni Grease-sýningu föstudaginn 26. ágúst í sal 1 í Sambíóunum Álfabakka, síðan 2. september viku síðar á sama tíma. Ef áhugi heldur áfram að magnast eru alltaf möguleikar á fleiri sýningum.
Olivia Newton-John lést þann 8. ágúst síðastliðinn, 73 ára að aldri. Hún hafði barist við brjóstakrabbamein síðustu þrjátíu ár. Newton-John eignaðist eina dóttur, Chloe Lattanzi, með fyrrverandi eiginmanni sínum, leikaranum Matt Lattanzi.
„Það var hún Guðný Ásberg Alfreðsdóttir, rekstrarstjóri Sambíóanna, sem fékk þessa frábæru og fallegu hugmynd að heiðra minningu Newton-John með því að sýna hinu sígildu klassík aftur á hvíta tjaldinu,“ mælti Alfreð í viðtali við Fréttablaðið á dögunum. Alfreð segir að hugmynd dóttur hans hafi strax verið fylgt eftir með því að óska eftir leyfi til að sýna myndina.
„Haft var samband við dreifingaraðila myndarinnar, Park Circus, og þetta gekk hratt og örugglega fyrir sig.“
Félagslíf þeirra Danny og Sandy virðist ekki vera flekklaust frekar en margt annað á menntaskólaárunum. Þegar klíkuheimur gagnfræðiskólans Rydell er umturnaður á svipstundu neyðist leðurklæddi, bílaóði gúmmítöffarinn til að (skulum við segja…) greiða úr því hvort þröngsýnu skólafélagarnir eða sumarástin hafi vinninginn.
Sandy neitar þó að gefast upp án þess að setja sig í baráttustellingar, eða ganga þá leið sem þarf til að fanga athygli vitleysingsins vinsæla. Fyrir henni er þetta allt sama tóbakið.
Nútíminn ætlar að bjóða fáeinum heppnum tækifæri til að bjóða tveimur úr sínum vina- eða fjölskylduhópi – þrjá talsins – á myndina en að sjálfsögðu þarf fyrst að taka þátt í fisléttum leik á Facebook-síðu Nútímans.