Síðastliðinn 9. mars birti Youtube rásin TheMacLife Productions viðtal við MMA kappann Gunnar Nelson í aðdraganda UFC London sem fer fram næstkomandi 18. mars, en Gunnar Nelson mætir hinum bandaríska Alan Jouban í búrinu (sjá myndband hér fyrir ofan).
Í viðtalinu ræðir Gunnar Nelson næsta bardaga, nýja húsnæði Mjölnis, Call of Duty og ökklameiðslin sem hann varð fyrir í fyrra; þó svo Nelson hafi ekki stigið inn í búrið í tæpt ár er hann hvergi banginn, að eigin sögn:
„Mér líður vel. Mér finnst eins og að hvíldin hafi verið góð fyrir mig.“
– Gunnar Nelson
Hér fyrir neðan má svo lesa ítarlegt viðtal SKE við Gunnar Nelson frá því í janúar: