Frasinn „að stökkva út um gluggann“ á ensku („jump out the window“) hefur tvær merkingar skv. slangurorðabókinni Urban Dictionary. Annars vegar merkir frasinn löngunina til þess að flýja raunveruleikann eftir að hafa orðið vitna að, eða komist í kynni við eitthvað, sem raskar ró manns. Hins vegar merkir frasinn að játa ást sína.
Báðar þessar merkingar eiga vel við lagið Jump Out the Window eftir Big Sean. Í texta lagsins segir rapparinn frá vinkonu sinni sem hann fellur ástarhug til og sem er einnig fórnarlamb heimilisofbeldis. Á annan bóginn trúir hann því ekki að kona sem er svo sterk:
Know ya momma didn’t raise you to take no disrespect, yeah /
I feel like real queens know how to keep the game in check, yeah /
og svo ráðagóð:
The question isn’t: Do he love ya?“ The question is, „Do ya love yourself?“ /
You give the best advice to your friends and not take it for yourself /
skuli sætta sig við vanvirðingu af þessu tagi. Á hinn bóginn veltir hann því fyrir sér hvort að hann eigi að segja konunni að hann elski hana.
Jump Out the Window er að finna á plötunni I Decided sem kom út síðastliðinn 3. febrúar en myndband við lagið kom út í gær (7. maí). Myndbandið, sem Lawrence Lamont leikstýrði, endurspeglar þema lagsins vel:
Í byrjun myndbandsins leggur rapparinn bíl sínum fyrir utan heimili konunnar. Tilkynnir hann komu sína símleiðis en er konan svarar í símann spyr hún hvað hann sé eiginlega að gera – þvert á væntingar rapparans (slitnar sambandið svo skyndilega). Því næst gengur Sean inn á heimili konunnar og er húsið tómt. Er honum litið á sjónvarpið þar sem pixluð útgáfa af konunni, í klóm illmennis, blasir við honum. Teygir hann sig í átt að fjarstýringunni og hverfur inn í hliðarveruleika tölvuleiksins.
Við tekur fyrirsjáanleg atburðarás þar sem rapparinn, í hlutverki
ævintýrahetjunnar, frelsar ósjálfbjarga prinsessuna úr klóm kærastans.
Hér er um að ræða einskonar myndlíkingu: tölvuleikurinn táknar þann ömurlega veruleika sem fórnarlömb heimilisofbeldis búa við – en auðvitað má spyrja hvort að söguþráðurinn sé ekki hálf klisjulegur?
Fyrir utan fyrirsjáanlegan söguþráð, þar sem stöðluð kynjahlutverk eru í fyrirrúmi, þá er myndbandið stórgott og lagið líka.
Vitaskuld er Big Sean ekki fyrsti rapparinn til þess að fjalla um heimilis- eða kynferðisofbeldi í textum sínum. Hér fyrir neðan eru þrjú hjartnæm lög á svipuðum nótum: