Auglýsing

Skiptar skoðanir um umdeilda auglýsingu Gillette: „Aldrei aftur Gillette.“

Fréttir

Síðastliðinn 13. janúar gaf bandaríski rakvéla- og rakblaðaframleiðandinn Gillette út nýja auglýsingu (sjá hér að ofan). 

Yfirskrift auglýsingarinnar, „We Believe: The Best Men Can Be,“ vísar til slagorð Gillette, „The Best a Man Can Get“ („Eins góður og karlmaðurinn gerist“)en í stað þess að styðjast við hefðbundið slagorð virðist sem svo að fyrirtækið hafi ákveðið að aðlaga kjörorðin að tíðarandanum og að #MeToo-byltingunni. 

Í upphafi auglýsingarinnarog í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um einelti og kynferðislega áreitni karlmanna, o.fl.—spyr ónefndur karlmaður: „Er karlmaðurinn ekki betri en þetta?“

Líkt og fram kemur á grein á vefsíðu The Guardian í morgun hefur auglýsingin stuðað suma viðskiptavini Gillette (þá aðallega karlréttindasinna). Talsverður fjöldi fólks hefur t.d. lýst óánægju sinni yfir auglýsingunni í athugasemdakerfi Youtube; grundvallast gagnrýni þeirra einna helst á því að Gillette sé að fella alla karlmenn (og drengi) undir einn hatt:

Strákar eru ekki, í eðli sínu, skrímsli, sem þurfa að hafa hemil á illum hvötum, ritar einn notandi Youtube í athugasemdakerfi síðunnar.

Nánar: https://www.theguardian.com/wo…

Meðal þeirra sem gagnrýna auglýsinguna er breski blaðamaðurinn Piers Morgan:

Ekki eru þó allir á því að auglýsingin sé slæm. Blaðamaðurin Andrew P. Street segir að fjaðrafokið í kringum auglýsinguna sé til marks um það hversu nauðsynleg slík herferð sé í raun og veru.  

Kanadíski höfundurinn Emily Andras hrósar Gillettehenni vöknaði um augun. 

Bandaríski sjónvarpsmaðurinn Dave Rubin gagnrýnir Gillette fyrir að gefa sér það að allir karlmenn skilgreini sig sem karlmenn. 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing