Í gær (26. apríl) frumsýndi tónlistarmaðurinn Luke Million myndband við lagið Back to the Rhythm á MTV Dance í Ástralíu. Lagið skartar söngvaranum Sam Sparro og leikur Svala Björgvins hlutverk í myndbandinu. Í myndbandinu getur meðal annars að líta hinn fræga DeLorean DMC-12 sem spilaði stóra rullu í Back to the Future kvikmyndunum.
Þess má einnig geta að Sam Sparro hefur áður unnið með hljómsveitinni Steed Lord en í nóvember 2015 gáfu þau út lagið Night Games (sjá hér fyrir neðan). Luke Million er sennilega hvað þekktastur fyrir að hafa gefið út endurhljóðblandaða útgáfu af þemalagi sjónvarpsseríunnar Stranger Things síðasta sumar.