Það er stundum erfitt þegar maður er í miðju ástandi, eins og núna, að hugsa um að því ljúki og eitthvað betra taki við. Núvitund er mikilvæg, en það er einnig mikilvægt að geta komið auga á leiðina út ef núið er ekki upp á sitt besta. Þetta vita strákarnir í hljómsveitinni Sveimhugar og hafa þeir því gefið út lagið Miklu betra til að minna fólk á eitthvað miklu betra.
Lagið má finna á Spotify bakvið þennan hlekk hérna.