Það var mikið fjör í síðasta þætti Kronik. Gestir þáttarins voru þeir Helgi B (Landaboi$), Igna, GKR, Birnir og Herra Hnetusmjör en þeir tveir síðastnefndu kíktu við í hljóðver X-ins með það fyrir stafni að kynna Stórtónleika KBE sem fara fram næstkomandi 16. desember í Gamla Bíó.
Nánar: https://midi.is/atburdir/1/102…
Ásamt því að auglýsa fyrrnefnda tónleika fluttu Birnir og Herra Hnetusmjör einnig lagið Já ég veit í beinni (sjá hér fyrir ofan).
Þess má einnig geta að lagið Já ég veit verður að finna á væntanlegu mixteipi Birnis en hér fyrir neðan er hlekkur á viðtal við rapparann þar sem hann ræðir, meðal annars, umrætt mixteip.
Nánar: https://ske.is/grein/mixteipid-…