Kómík
Joe Goes er Youtube rás með yfir 300.000 áskrifendur (áhorf síðunnar telur yfir 59 milljón „views“).
Í gær sendi stjórnandi rásarinnar, Joe Hanson, frá sér nýtt myndband þar sem hann smakkar hefðbundinn íslenskan mat ásamt hópi af Íslendingum. Í myndbandinu smakkar hópurinn svið, hákarl, brennivín, harðfisk, lifrapyslu, slátur og fleira.
Eitt af því sem stendur upp úr í myndbandinu (að eftirminnilegu „freestyle-i“ undanskildu) er þegar Joe Hanson prófar neftóbak í fyrsta skiptið (06:43):
„Always take drugs from a guy who looks like a young Hunter S. Thompson.“
(„Maður á alltaf að taka við eiturlyfjum frá manni sem lítur út eins og ungur Hunter S. Thompson.“)
– Joe Hanson
Hér er svo hlekkur á myndband þar sem Joe Goes heimsækir Reðursafnið: