Tónlist
Smekkur manna er mismunandi. Sérstaklega hvað tónlist varðar. Sumir vilja ekkert nema akfeitt tekknó, þykkt eins og ullarteppi. Aðrir bara kántrí. Willie Nelson. Billy Ray Cyrus. Svo eru það Wagner-istarnir, sem sofna við Tristan & Isolde og lesa Freud. Flestir fara þó um víðan völl. Við hjá SKE tilheyrum þeim hópi, en viðurkennum þó að við séum sérstakir áhugamenn um gott Hip-Hop. Fyrir stuttu settist heimspekingurinn og tónlistarunnandinn Friðrik Níelsson niður og tók saman 10 uppáhalds íslensku Hip-Hop lögin sín. Hér er afraksturinn (ATH. lögin eru ekki í sérstakri röð).
1. Forgotten Lores & Skytturnar – Ak Öfgar
„Ekkert viðlag. Ekkert vesen.“
2. Subterranean – My Style Is Freaky
„Gamli skólinn eins og hann gerðist bestur.“
3. Úlfur Úlfur featuring Kött Grá Pje – Brennum allt
„Kötturinn með líklegast eitt beittasta vers í sögu íslensks Hip-Hops.“
4. Mælginn – Sat um kvöld
„Einlægur texti yfir stórglæsilegt bít frá Magga Maximum (Gnúsa Yones).“
5. GKR – Morgunmatur
„Góð leið til þess að byrja daginn.“
6. Original Melody – Cosa Say
„Fonetik Simbol með klassískt bít.“
7. O.N.E. – Lovesong
„Tilfinningaríkur Opee upp á sitt besta.“
8. Emmsjé Gauti – Strákarnir
„Gauti að toppa.“
9. Tiny – Thought U Knew
„Tiny + Marteinn = Beauty.“
10. Quarashi – Mess It Up
„Sölvi með eyra fyrir góðum sömplum.“
Honorable Mentions:
O.N.E. feat. Tiny – For the Record
„Mikið spilað í lyftingarklefanum á sínum tíma.“
Aron Can – Enginn mórall
„Íslenski nýji skólinn, fallegur arkitektúr.“
Cheddy Carter – Smoked Lamb
„Bæjarins Beztu.“
Emmsjé Gauti feat. Aron Can – Silfurskotta
„Silkimjúkt.“
Antlew & Maximum – Remember What You Told Me (feat. Deez and Jason)
„Sál.“
Cell 7 – Got This
„Þéttleiki.“