Auglýsing

Alvia Islandia gagnrýnin í garð MH (myndband)

Síðastliðið föstudagskvöld stóðu Robbi Kronik, Emmsjé Gauti, DJ B-Ruff og Keli trommari fyrir svokölluðu „takeover-i“ á útvarpsstöðinni FM 957 með það fyrir marki að kynna tónlist Young Thug fyrir hlustendum en rapparinn heldur tónleika hér á landi næstkomandi 7. júlí í Laugardalshöllinni.

Umsjónarmenn þáttarins fengu jafnframt góða gesti í heimsókn, þar á meðal 
Alviu Islandia. Ásamt því að svara nokkrum viðeigandi spurningum flutti hún 
einnig lagið Ralph Lauren Polo í beinni. Í texta lagsins kemur fram að Alvia hafi 
sótt um í MH en hafi aldrei komist inn. Aðspurð út í málið sagðist hún hafa 
upplifað mikla höfnun:

„Ég sótti þrisvar sinnum um að komast inn í MH … en þau vildu ekki fá mig þarna inn … eftir þriðja skiptið tók ég þetta bara sem ,sign’ frá alheiminum að ég ætti bara ekki að fara í MH … hversu mikil höfnun, samt, fyrir ungan ungling!“

– Alvia Islandia

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing