Eins og fram kom í gær á Ske.is var hljómsveitin Dillalude einn af hápunktum
Sónar hátíðarinnar að mati SKE en hljómsveitin sérhæfir sig í því að flytja og túlka
tónlist Jay Dilla (Jay Dee) í lifandi tónum á sviði.
Hljómsveitin samanstendur af þeim Magnúsi Tryggvasyni, Steingrími Teague,
Benedikt Frey (DJ B Ruff) og Ara Braga Kárasyni. Bassaleikarinn Andri Ólafsson
var einnig með Dillalude á sviði. Hljómsveitin kom fram á undan Kött Grá Pje í
Silfurbergi á laugardagskvöldinu.
Hér fyrir ofan má sjá hljómsveitina túlka lagið Fall In Love eftir Jay Dilla sem finna
má á plötunni Fantastic, Vol. 2 (hér fyrir neðan má einnig hlýða á lagið í
upprunalegri útgáfu).