Eins og fram hefur komið á Ske.is var hljómsveitin Dillalude einn af hápunktum
Sónar hátíðarinnar að mati SKE en hljómsveitin sérhæfir sig í því að flytja og túlka
tónlist Jay Dilla (Jay Dee) í lifandi tónum á sviði.
Hljómsveitin samanstendur af þeim Magnúsi Tryggvasyni, Steingrími Teague,
Benedikt Frey (DJ B Ruff) og Ara Braga Kárasyni. Bassaleikarinn Andri Ólafsson
var einnig með Dillalude á sviði. Hljómsveitin kom fram á undan Kött Grá Pje í Silfurbergi á laugardagskvöldinu.
Hér fyrir ofan má sjá hljómsveitina túlka lagið Runnin eftir hljómsveitina The
Pharcyde (lagið er jafnframt pródúserað af Jay Dilla). Runnin má finna á plötunni
Labcabincalifornia sem kom út árið 1995. (hér fyrir neðan má einnig hlýða á
lagið í
upprunalegri útgáfu).