Það gerðist ýmislegt á VMA verðlaunahátíð MTV í gær. Rapparinn G-Eazy reyndi að kissa Britney Spears en hún snéri sér undan; Beyonce nældi sér í átta verðlaun; og Drake játaði ást sína á Rihanna.
Ástarjátningin átti sér stað þegar Drake afhenti Rihanna Video Vanguard verðlaunin (verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á sviði tónlistarmyndbanda). Áður en hann afhenti verðlaunin hélt hann stutta ræðu söngkonunni til heiðurs (sjá myndband hér fyrir ofan).
Þetta var í fyrsta sinn sem Drake og Rihanna komu fram opinberlega sem par.
„Ég hef verið ástfanginn af þessari konu í 11 ár.
– Drake