Tónlist
Í gær (7. mars) birti vefsíðan Hypebeast áður óbirt viðtal sem leikstjórinn og framleiðandinn Jeff Broadway tók við Kanye West árið 2013. Hluti af viðtalinu birtist í heimildarmynd Broadway um plötufyrirtækið Stones Throw, Our Vinyl Weighs a Ton, en þetta er í fyrsta skipti sem viðtalið er aðgengilegt í fullri lengd.
Í viðtalinu ræðir Kanye West, meðal annars, samband sitt við Jay-Dilla, en sá síðarnefndi hafði mikil áhrif á tónlist West.
„Ég kynntist Jay-Dilla heima hjá Common í Los Angeles … ég man að ég starði á MPC-inn (sampl- og trommuheili) hans Jay Dilla og hugsaði með sjálfum mér: ,þessar trommur rekja rætur sínar til þessa MPC;’ líklegast bestu trommur í sögu rapps.“
– Kanye West
Einnig ræði Kanye West uppáhalds tónlistarmanninn sinn, James Brown;
uppáhalds plötufyrirtækið sitt, Motown; og borgina Detroit í Bandaríkjunum.