Það styttist óðfluga í næstu plötu rapparans Emmsjé Gauta. Platan ber titilinn Sautjándi nóvember og kemur út á þeim óvænta degi 17. nóvember. í tilefni þess var vefsíðan emmsje.is sett í loftið. Á síðunni er talið niður til útgáfu plötunnar og ekki nóg með það – heldur gefst áhugasömum kostur á því að spila tölvuleik sem var sérstaklega hannaður fyrir plötuna.
Um ræðir lo-fi tölvuleik úr gamla skólanum þar sem þekkt lög frá Emmsjé heyrast í lo-fi útgáfum. Markmið leiksins er að koma Gauta á skemmtistaðinn Prikið í tæka tíð fyrir útgáfupartí plötunnar.
Hægt er að spila tölvuleikinn hér: www.emmsje.is
Hér fyrir neðan má sjá skjáskot úr leiknum: