Í dag, föstudaginn 11. nóvember klukkan 20:00, mun Erpur Eyvindarson (betur þekktur sem Blaz Roca) frumsýna myndband við lagið Fýrupp! á Tivoli.
Í tilkynningu um viðburðinn stendur:
„Lag unnið með hot boj Joey Frazier og mixað/masterað af Balatron mannveislunni. Myndbandið er borið á borð af ljóngröðu ungstirni rappmyndbandanna, Hlyni Hólm. Maradona Social Club fær Cher, RWS napalmbombar og Reykjavík City fýrar upp alla leið til París og tilbaka! Mætum snemma í öl og sterkustu pizzu í heimi sem Blazi er búinn að vera að eldbaka í samvinnu við Ugly, útkoma áratuga langs þróunarferlis og það er mikil veisla. Ghost Chilli FIRE!!Nýju strákarnir í bekknum, Landaboj$ spúa eldi og BlazRoca fýrar upp lifandi sinfóníum! Dj Moonshine dettur síðan á spilarana og leiðir okkur inn í blakkát næturinnar! ALLIR DAGAR NAMMIDAGAR BOJ!!!“
– Blaz Roca
Hvar: Tivoli Bar (Hafnarstræti 4, 101 RVK)
Hvenær: 20:00
Aðgangur: Ókeypis