Í byrjun vikunnar sagði SKE frá því að Youtube rásin Cream Clout hafisent frá sér
nýtt myndband þar sem félagarnir Curls og Marc bregðast við laginu Reykjavík
eftir Emmsjé Gauta.
Nánar: https://ske.is/grein/tveir-band…
Síðan þá hafa tvö ný myndbönd ratað inn á Youtube þar sem erlendir hlustendur hlýða á lagið Strákarnir eftir hinn íslenska Gauta.
Myndböndin eru langt frá því að vera jafn vinsæl og myndbönd Cream Clout – en um ræðir Youtube rásir með talsvert færri fylgjendur – en verða, samt sem áður, að teljast athyglisverð; bæði Florina og Alazon virðast sannfærð um að Gauti sé rússneskur.
„Is this like Russian or German?“
– Florina Desu
„I think it’s Russian, maybe?“
– Alazon
Hér fyrir neðan er svo fyrrgreint myndband frá Cream Clout.