Auglýsing

„Lærði lagið aftur á bak á einni viku.“

Tónlist

SKE: „Að horfa á myndband er góð skemmtun.“ Svo sagði atvinnuröddin Gylfi Pálsson einhvern tímann á níunda áratugnum, áður en þessi sama hljóðfagra rödd las upp aldurstakmark viðeigandi bíómynda í frægri viðvörunar-kvikmynd Kvikmyndaeftirliti ríkisins. Segja má að þessi ódauðlegu orð eigi enn við enn þann daginn í dag, en nýverið sendi tónlistarkonan MIMRA (María Magnúsdóttir) frá sér myndband við lagið Play With Fire; að leiða sjónum að fyrrgreindu myndbandi er ánægjulegt (sjá hér fyrir neðan) og lagði söngkonan ýmislegt á sig til þess að tryggja skemmtun áhorfanda. Í tilefni útgáfu myndbandsins heyrði SKE í MIMRU og spurði hana nánar út í lagið, myndbandið og uppáhalds rapplögin: Góða skemmtun.

SKE: Til
hamingju með myndbandið, það er stórgott. Myndbandið virðist
vera skotið aftur á bak – er það rétt?

MIMRA: Takk
kærlega og já, það er rétt! Birta og Guðný í Andvari
Productions framleiddu myndbandið fyrir mig. Mjög fljótlega í
ferlinu fengum við hugmyndina um að gera svona aftur á bak vídjó
sem setti pressuna á mig að læra lagið aftur á bak á bara einni
viku. Svona eins og maður gerir! Það var þvílík áskorun svo
ég varð að vera minn eigin raddþjálfi alla leið. Á tökudag
gekk ég svo aftur á bak og söng lagið aftur á bak sem var önnur
áskorun. En útkoman er alveg þess virði! Einföld hugmynd sem
lítur út eins og fínasta tæknibrella.

SKE: Varstu
nokkuð innblásin af myndbandinu Drop
eftir
Pharcyde?

Algjörlega,
enda geggjað myndband. Pharcyde vídjóið er „legend“ en alls ekki
eina „reverse“ myndbandið þarna úti. Þeir hins vegar lögðu það
á sig eins og ég að læra textann aftur á bak … sem bara getur
ekki verið einfalt með rapplag og svona sjúklega mikinn texta!

SKE: Lagið
heitir Play
With Fire.
Hvað
geturðu sagt okkur um hugmyndina á bakvið lagið?

Hugmyndin
bakvið lagið er hrein og bein samskiptaangist. Eftir á að hyggja
tel ég best í stöðunni að selja Tinder lagið til að tryggja
mér heimsyfirráð. Held það væri eina vitið.

SKE: Fyrir
þremur mánuðum gafst þú út lagið Söngur
Valkyrjunnar,
en
það var sungið á íslensku. Hvers vegna ákvaðst þú að syngja
á ensku í þetta skiptið?

Ég
sem lögin mín yfirleitt á ensku en þó stöku sinnum á íslensku
svo það er kannski meiri tilviljun að fyrsta lagið frá mér var
á ástkæra ylhýra. Fer svolítið eftir innblæstri. Finnst til
dæmis að lag um Valkyrju í 5/4 eigi algjörlega heima á íslensku.

SKE: Eru
einhverjir tónleikar á dagskrá – eða plata?

Já,
núna á fimmtudagskvöld ætla ég að koma fram á Kaffi Vínyl um
níu leytið. Þessa dagana kem ég fram ein á sviði með hljómborð,
tölvu og pedala. Ég er hér um bil tilbúin með plötu sem ég ætla
að koma frá mér seinna á árinu. Það verður eitthvað. Get
ekki beðið!

SKE: Þann
8. mars var Alþjóðlegur barráttudagur kvenna haldinn. Gerðirðu
eitthvað í tilefni dagsins?

Hugsaði
um konurnar í mínu lífi sem hafa haft áhrif á mig og hvatt mig
áfram.

SKE: Uppáhalds
íslenska OG erlenda rapplag?

Uppáhalds
íslenska rapplagið núna er Tíminn tapar takti með
Reykjavíkjurdætrum því textinn er svo dásamlega berskjaldaður
og alvöru. Líka Reykjavík með Gauta. Get ekki gert upp á milli Keep Ya Head
Up
með Tupac og The Blacker the Berry með Kendrick Lamar. Fæ ekki
nóg af hvorugu.

SKE: Ef
við kæmum stóru auglýsingaskilti fyrir í miðbæ Reykjavíkur og
þú mættir velja skilaboðin á skiltinu – hvaða skilaboð yrðu
fyrir valinu?

Vá,
get ekki svarað þessu, alltof mikil ábyrgð. Allavega ekki
eitthvað um Ísland og Evrópusambandið.

SKE: Eitthvað
að lokum?

Kíkið
á myndbandið mitt og njótið lífsins. 

(SKE þakkar MIMRU kærlega fyrir spjallið og hvetur lesendur til þess að láta sjá sig á tónleikum MIMRU á Kaffi Vinýl á fimmtudaginn. Hér fyrir neðan eru svo töffararnir í Reykjavíkurdætrum, goðsögnin Tupac Shakur og hinn íslenski Alan Rickman: Gylfi Pálsson.)

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing