Í gær (30. nóvember) gáfu rappararnir Countess Malaise og Lord Pusswhip út lagið SAY MY NAME á Soundcloud (sjá hér fyrir ofan). Lagið pródúseraði Þórir Már Davíðsson (Mistersir).
Countess Malaise, sem heitir réttu nafni Dýrfinna Benita, hefur komið sterk inn í íslensku rappsenuna í ár. Ásamt því að hafa gefið út lögin Kvalin, Snooze og Skip A Case átti hún einnig erindi í lögunum Watch Me (ásamt Black Pox og Prince Fendi) og PSYCHO (ásamt CYBER).
Nánar: https://soundcloud.com/countes…
Lord Pusswhip hefur einnig verið iðinn við kolann í ár en tónlistarmaðurinn hefur sent frá sér fjöldan allan af lögum síðastliðna mánuði á Soundcloud-síðu sinni.
Nánar: https://soundcloud.com/mantisf…
Pusswhip pródúseraði meðal annars lagið Get U High fyrir rapparann Freddie Dredd sem kom út fyrir ca. mánuði síðan.