Auglýsing

Stormzy vekur ótta

Íslandsvinurinn Stormzy vinnur nú baki brotnu að fyrstu plötu sinni en óljóst er hvenær hún lítur dagsins ljós.

Stormzy spilaði á Secret Solstice tónlistarhátíðinni í Laugardal síðasta sumar við gríðarlegar undirtektir enda mikill meðbyr sem UK Grime stefnan var að fá (og er enn), meðal annars vegna yfirlýsts áhuga Drake og Kanye West á senunni.

Í gær sendi Stormzy frá sér fyrsta myndbandið við lag af þessari væntanlegu plötu. Lagið heitir Scary og er vægast sagt kraftmikið. Sir Spyro gerði lagið.

Hér má einnig sjá myndband við lagið sem skaut honum á toppinn og gerði allt tryllt á Secret Solstice tónleikunum hans síðasta sumar:

Og ekki má gleyma þessu vinalega lagi:

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing