SKE frumsýnir hér með fyrsta þátt vefseríunnar Universal Skyr. Þátturinn ber
titilinn Morgunmatur og fjallar um útgáfutónleika rapparans GKR sem haldnir
voru í GamlaBíó föstudaginn 10. febrúar.
Hugmyndin á bakvið vefseríuna er að fjalla um Ísland og íslenska menningu út
frá sjónarhóli erlends ferðamanns sem lýsir upplifun sinni á landinu á sýrukenndan hátt.
SKE vonast til þess að birta fleiri þætti úr vefseríunni á komandi dögum og vikum.
„Stay tuned.“