Söngkonan Torii Wolf og hinn goðsagnakenndi DJ Premier unnu síðast saman í fyrra þegar hinn síðarnefndi endurhljóðblandaði lagið Shadows Crawl (sjá neðst).
Í gær gáfu þau út nýtt lag í samstarfi við rapparann Macklemore en lagið ber titilinn Free og er aðgengilegt á Soundcloud.
Lagið pródúseraði samstarfsmaður DJ Premier, King of Chill, en Premier sá um plötuklór („scratches“).
Lagið Shadows Crawl eftir Torii Wolf og DJ Premier