Halldór Kristinn Harðarsson er betur þekktur sem rapparinn KÁ-AKÁ. Í dag sendi hann frá sér nýtt myndband við lagið Draugar en með honum í laginu eru úlfarnir tveir, þeir Arnar Freyr Frostason og Helgi Sæmundur Guðmundusson (Úlfur Úlfur).
KA AKÁ kynnti myndbandið með eftirfarandi orðum á Facebook síðu sinni í dag:
„Þegar góðir gæjar koma saman, gerist alltaf eitthvað skemmtilegt. Hér er nýjasta lagið mitt sem ég gerði í samstarfi við strákana í Úlf Úlf, þeim á ég mikið að þakka fyrir að vera alltaf ógeðslega næs og góðar sálir. Sömuleiðis Kiddi og Axel þeir eru gulldrengir.
Ég ætla ekki að segja mikið í þetta skiptið, heldur bara leyfa ykkur að njóta. En það er á svona stundum þar sem maður áttar sig á hversu mikið af góðu fólki maður hefur í kringum sig.“– KA AKÁ