Tónlist
Eitt sinn lét írski heimspekingurinn George Berkeley eftirfarandi ummæli falla: „Að vera er að vera skynjaður“ („Esse est percipi“). Í samhengi ástarinnar tekur þessi hugmynd á sig ógnvænlegri mynd; ástfangin manneskja hræðist ekkert meir en að hverfa úr augsýn þess sem hún elskar – slíkur ósýnileiki jaðrar við dauðann.
Síðastliðinn föstudag sendi söngkonan Guðrún Ýr frá sér lagið Ein og segja má að texti lagsins – að einhverju leyti, að minnsta kosti – tengist þessari hughyggju Berkeley: löngun manneskjunnar að sjá og vera séð, sumsé að upplifa ekki þann einmanaleika sem felst í fyrrgreindum ósýnileika.
Lagið er pródúserað af tvíeykinu ra:tio, sem samanstendur af þeim Bjarka Sigurðarsyni og Teiti Helga Skúlasyni, og er aðgengilegt á Spotify.
Í samtali við SKE fyrir helgi lýsti Guðrún Ein sem lagi sem margir ættu að geta tengt við. Aðspurð út í texta lagsins svaraði Guðrún skorinort: „Ég var eiginlega bara að syngja um það hvernig mér leið.“
Guðrún Ýr spjallaði einnig við blaðamann hjá vefsíðunni Bleikt.is nú á dögunum þar sem hún tjáði sig nánar um samstarf hennar og ra:tio:
„Við erum að vinna að stærra verkefni í augnablikinu sem kemur vonandi út bráðlega.“
– Guðrún Ýr
Guðrún Ýr er fædd 1996 og er útskrifuð úr MR. Hún stundar nám í söng og píanóleik og er úr Mosfellsbænum. SKE hvetur lesendur til þess að fylgjast nánar með þessari hæfileikaríku söngkonu í framtíðinni.
Orð: RTH