Atli Fannar Bjarkason verður ekki hluti af Vikunni með Gísla Marteini í vetur. Síðustu hefur Atli verið með innslag í þættinum þar sem hann fer yfir fréttir vikunnar en svo verður ekki í vetur.
Sjá einnig: Atli Fannar ráðinn til RÚV en hættir í Vikunni
Atli grínaðist með málið á Twitter í kvöld þegar fyrsti þáttur Vikunnar í vetur var sýndur á RÚV. Hann birti þá mynd úr vinsælu raunveruleikaþáttunum Bachelor og ýjaði að því að Gísli hefði valið Berglindi Festival fram yfir hann með rósaathöfn, líkt og tíðkast í þáttunum.
Margar spurningar í DM og svarið er já: Þetta fór svona fram #vikan pic.twitter.com/NQ6Y3eaasM
— Atli Fannar (@atlifannar) September 6, 2019