Átta umsóknir bárust um embætti lögreglustjóra á Norðurlandi vestra sem auglýst var laust til umsóknar 27. mars síðastliðinn. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðs Íslands . Umsækjendur um embættið eru:
Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir – aðstoðarsaksóknari
Birgir Jónasson – löglærður fulltrúi
Helgi Jensson – aðstoðarsaksóknari
Hildur Sunna Pálmadóttir – lögfræðingur
Karl Óttar Pétursson – lögfræðingur
Magnús Barðdal – útibússtjóri
Sigurður Hólmar Kristjánsson, settur lögreglustjóri
Stefán Ólafsson – lögfræðingur
Hæfnisnefnd sem hefur ráðgefandi hlutverk í ráðningarferlinu mun nú fara yfir umsóknirnar.