Covid-19 smit greindist í verslun H&M, sem staðsett er á Hafnrtorgi í Reykjavík. Greint er frá þessu á vef mbl
Verslunin opnaði seinna í dag vegna smitsins en ekki er vitað hvort um er að ræða starfsmann eða viðskiptavin verslunarinnar. Ekki er hægt að gefa þær upplýsingar af „persónuverndarástæðum“.
„Aðaláhersla H&M er að tryggja heilsu og öryggi samstarfsmanna okkar og viðskiptavina, sem og að gera viðeigandi ráðstafanir til þess að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar,“ segir í skriflegu svari frá H&M við fyrirspurn mbl.is