Í kvöld verður fjölskyldubingó mbl.is haldið í þriðja sinn. Gleðin hefst á slaginu kl. 19 á mbl.is og rás 9 í Sjónvarpi Símans. Stjórnendur verða þau Siggi Gunnars og Eva Ruza og tónlistarmaðurinn Jón Jónsson mætir í stúdíóið og syngur fyrir þáttakendur.
„Ásóknin í bingóið í síðustu viku var gríðarlega mikil og fundum við allhressilega fyrir því. En við mætum til leiks í kvöld ennþá öflugri og með margfalt fleiri vinninga svo fleiri fái að njóta,“ segir bingóstjórinn Siggi Gunnars í samtali við mbl.is
Mikilvægt er að tryggja sér bingóspjald sem allra fyrst þar sem að þáttaka er takmörkuð. Heildarverðmæti vinninga er yfir 1,7 milljónir. Allar upplýsingar um þáttöku má finna inn á www.bingo.is/bingo